09.01.2009 17:55:01 / harpazz

Ikea leikur Monitor!!

Kosningin er hafin elskurnar mínar!

Verið svo væn og kjósið okkur, því við erum með ágætis breytingu!

http://www.monitor.is/tengill/646







TAKK ÆÐIN MÍN!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 00:00:55 / harpazz

2008 gone

Gleðileg Jól og Gott og farsælt ár!

Smá frá 2008!

*Janúar: Síðustu áramót eyddi ég með fjölskyldu Magga í Miðfellinu, svo var ég í nokkra daga hjá Magga mínum í Rvk, fórum í bekkjarparý hjá bekknum hans í ML. Svo byrjaði síðasta önnin mín í Verkmenntaskólanum.
Mynd úr bekkjarpartýinu.


*Febrúar: Ég byrjaði í 6 vikna átaksnámskeiði í Átak á Akureyri var voða dugleg þó að það hafi ekki verið mikill árangur í endann. Jæja, afmælið hennar Tinnu var og var það alveg svakalega skemmtilegt! Svo Þorrablót á skerinu sem ég tel hafa verið ágætt líka.

*Mars: VMA hélt áfram, Páskarnir komu, ég skellti mér suður um páskana til Magga, fékk far með Tinnslu og við fórum út á djamm eitt kvöld í borginni og komum bara óvenju snemma heim! Stilltu stelpuskjáturnar!

*Apríl: VMA að klárast fljótlega, Sylvía "Litla" fermdist! Dimmeteringin góða átti sér stað, og djöfull var það skemmtilegur dagur!! Við Lotta, Lára og Bjingi fórum í smá fjöruferð hjá Valþjófsstöðum í góðu veðri!


Fjöruferð

*Maí: Prófin kláruðust, VMA kláraðist, Útskriftin var líka mjög góður dagur, sauðburður á fullu í sveitinni!


*Júní: Byrjaði að vinna hjá Orkuveitu Reykjavíkur í garðyrkju, var að mestu leyti uppvið Hellisheiðarvirkjun. Hélt  fyrsta partýið í íbúðinni með hjálp Hrafnhildar! ;)

*Júlí: Vinna bara, svo skruppum við á Lunga á Seyðó, það var mjög gaman, sérstakt allt saman en gaman!

Á Seyðisfirði

*Ágúst! Tók mér sumarfrí, Fjölskyldan hittumst öll í Skaftafelli og áttum þar góða helgi í útileigu með mjög gott veður! Við Maggi fórum í sveitina og hjálpuðum við mjaltirnar, svo fór ég heim og slakaði á fyrir Sláturtíðina!

Ein úr Skaftafelli


*September: Sláturtíð hófst, það var bara skemmtilegur tími að vinna í sláturtíðinni á Skerinu, fullt af fólki sem maður kynntist og mikið unnið og fenginn svolítinn pening! Gott að vera hjá Ömmu gömlu líka. Kreppan kom víst um þetta um þetta leyti! Og rústaði mörgum plönum sem ætlunin var að fara að gera!
 


*Október: Sláturtíðinni lauk um 20 okt, ég fór til Reykjavíkur til Magga míns, byrjaði að fara á spítalann því að það var ætlunin að ég ætti að fara í lyfjameðferð gegn bólgu í vöðvunum en svo er það bara óþarfi, hún er í voða litlu magni í vöðvunum svo að lyfin myndu bara fara verr með annað í líkamanum því þau eru svo sterk en þar sem ég er ekki með nein einkenni þá var eiginlega hætt við það. Það er nefnilega eitthvað efni sem er CK sem er svolítið hátt hjá mér, en það verður bara fylgst með því í einhvern tíma í viðbót til að vita hvort að það jafni sig eitthvað. Svo leitaði ég mér að starfi í borginni

Nóvember: Skrapp 1 viku til Svíþjóðar/Danmerkur, kíkti til Sigurðar og Líneyjar og fékk að vera hjá Maríu minni í Lyngby í DK, leitaði meira að vinnu í RVK og fór loks í atvinnuviðtal hjá Hrafnistu í Rvk.
 

Desember: Byrjaði að vinna á Hrafnistu í Reykjavík, gengur bara þokkalega þar. En svo vorum við Maggi svo einstaklega heppin að vera valin í Ikea leik Monitor og við fengum gefinst 100 þúsund kall í Ikea!! Svo eru aðrir 7 þátttakendur sem fengu sömu upphæð lika á árinu, og í Janúar verður netkosning á hver gerði flottustu breytinguna með þessum 100 kalli! Svo Vote for us please!! ;* Ég skrapp heim rétt yfir helstu jóladagana, mjög ljúft að geta eytt aðfangadag heima í sveitinni sem ég elska svo mikið!



Annars þakka ég öllum fyrir ágætt ár! Ég verð að vinna um þessi áramót, en tek vel á móti nýju ári og hlakka til hvernig það kemur út!

Kv.Sigríður Harpa Jónsdóttir

 
 

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.08.2008 20:44:23 / harpazz

... og sumarið endar

Sumarið nokkurn veginn að enda, en loksins ákvað ég að setjast niður fyrir framan tölvuna og skrifa smá blogg. Það er bara búið að vera fínt hjá mér í sumar, ágætt að vinna í Orkuveitunni (náði smá "tani" í vinnunni og svona :) og ágætt vera í bænum, allavega svona yfir sumartímann. Ég er svo sem ekki búin að gera neitt afburðarríkt nema að vinna og horfa á Prison Brake en ég fór allavega á Lunga eins og ég ætlaði mér, það var bara helvíti gaman! :)

Svo fórum við í að koma úr útilegu síðustu helgi, Mamma og Pabbi, Sylvía, Sigurður, Líney, ég og Maggi fórum í Skaftafell sem er afskaplega fallegur staður. Við kíktum þar  á Skaftafellsjökul og Svartafoss.

En núna er ég sum sé komin í "sumarfrí" eða between jobs, en ég fer að vinna svo í sláturtíðinni ég skerinu 10. sept.  En ég er hins vegar ekki alveg aðgerðarlaus, ég er heima í sveitinni hans Magga og fæ að mjólka beljurnar þar. Þetta er svolítið öðruvísi búskapur en þessar rolluskjátur! Hver veit nema maður verði bara kúabóndi í framtíðinni ;Þ

Ég hlakka til að fara heim í haust, ég elska að vera heima á haustin, þegar myrkrið fer að taka yfirhöndina á kvöldin og næturnar, meiri rigning og kósý. Vá, ég er eitthvað svo tóm samt, langar að koma með viðburðarríkt og skemmtilegt blogg, en ég get allavega sagt að ég er lifandi! ;) Æj, ég kem bara myndir til að lífga uppá þetta! ;)

Þessar eru úr Skaftafelli


> Skaftafellsjökull>

>
>



Famelían alle sammen, fyrir utan pabba sem tók myndina

Líney, Sylvía, Mamma, ég og Pabbi

Ég og Maggi og svo Magnúsarfoss í baksýn

Siggi, Sylvía og Líney

Svartifoss

Me and Maggs

Svo nokkrar frá Lunga


Guess who?

Við fengum að tjalda í garðinum hjá Oddný og Kisurnar buðu okkur velkomin ;)

Ég og Lollí


Barði Kallinn

Bang Gang

Bloodgroup

Bloodgroup


Dj´s!!

Oddný og Lára á Kaffi Láru


Og svo við.

Svo er stefnan út eftir sláturtíðinni, og ég gerði smá djókmynd sem tengist því! hehe


 
Over And Out...

Svo er stefnan vonandi að halda uppá merkisafmælið mitt! ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 22:58:33 / harpazz

Sumar sumar!!


Harpan er útskrifuð úr VMA af félagsfræðibraut!  Sá atburður átti sér stað  laugardaginn 24. Maí um klukkan hálf 11 um morguninn.  Þetta var einstakur dagur og brosti hún sitt breiðasta mest allann daginn, en þegar hún átti svo að mæta í myndatöku þá klikkað brosvöðvarnir aðeins því þegar Harpa átti að brosa alveg viljandi þá hristust kinnarnar eins og motherfucker og er haldið að upp hafi komið bara „Chandlerbrosið“ úr friends en það verður bara að koma í ljós!  En svo var farið út að borða með allri fjölskyldunni í  Sjallanum og það var bara mjög fínn matur og átum við eins og okkur er einum lagið, þ.e.a.s. við rúlluðum eins og boltar út eftir matinn.  Ég er bara mjög sátt með þennan dag!

Hérna er mynd af öllum útskriftarhópnum

En núna er ég komin í borgina, ég er búin að skrá mig í hraðlestrarnámskeið sem er eitt kvöld í viku i 6 vikur, svo er ég að fara að kaupa þriggja mánaða kort í Word class!ég byrja að vinna í Orkuveitunni á mánudaginn og mig hlakkar bara til, það er svolítið leiðinlegt að hanga allann daginn og gera ekki neitt, en ég er samt búin að horfa slatta á friendsþætti sem ég hef ekki horft á áður!  ;) Ég sakna samt allra heima líka.  Hlakka til að skreppa heim!

>

Hehe, Já, ég fór í ræktina áðan með bróa að prófa World class, og þar voru svo mergjaðir lyftingagaurar, alveg sultubrúnir og svo massaðir að hálfa væri nóg! Og þegar þeir lyftu þá öskruðu þeir  svo það heyrðist um allan sal, alveg svakalega töff náungar eða hitt þó heldur, ég var í vandræðum með mig að hlæja ekki af þeim... Enda örugglega búnir að sprauta sig oft og í rassgatið með sterum.. En jæja..  svo kom stúlka sem var að vinna á stöðinni og spurði þá hvort að þeir ætti bíl með einhverju ákveðnu númeri, og einn þeirra jánkaði því, svo stúlkan bað hann um að færa bílinn því honum hefði verið lagt í fatlaða stæði!  „nú“ svarar gæjinn, „hvað skiptir það máli. Helduru virkilega að það sé að koma einhver griplingur hingað?“ (líkamsræktarstöðin er reyndar á sama stað og sundlaugin)  Allavega var hann með svaka stæla en fór svo reyndar og færði bílinn! Það fyrsta sem mér datt í hug af hverju í ósköpunum ætti gaur í líkamrækt að eiga erfitt með að ganga nokkra metra af bílastæðinu. En jæja, mér fannst ekki vera mikið í heilabúinu á þessum  gaurum. Bara sorglegir gaurar.

Kveðja, SiggaHarpaJóns! Þakka fyrir útskriftarkveðjurnar!



» 9 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 13:33:28 / harpazz

Ég þoli ekki að finna fyrirsögn!

Dagurinn í gær var ekki mjög skemmtilegur! Eða hann byrjaði ekki vel! Ég vaknaði svona um átta leytið, fékk mér að borða morgunmat á vistinni, fór svo og lagði bílnum mínum uppá gangsstéttina þeim megin sem litla planið er, því ég ætlaði að setja allt draslið mitt í bílinn því ég er loksins að losna frá vistinni...Jæja, ég fer svo upp 5 stiga til að ná í fyrsta kassann, og það gengur bara vel, svo fer ég aftur upp og niður stigann til að ná í  meira dót. Nei, þá kemur starfsmaður af vistinni og bannar mér að leggja þarna, því það væri alveg stranglega bannað en ég segi nú bara það hlýtur að vera allt í lag rétt á meðan að ég er að fara með dótið í bílinn. Neinei, það væri alveg bannað að leggja þarna! (Ég hef reyndar oft séð fólk leggja þarna þegar það er að flytja alls konar dót, t.d. þegar var verið að flytja pool borðið, en nei ég mátti það ekki)  Jæja, ég varð svo sem ekkert voðalega glöð en ég auðvitað mótmælti ekki frekar. Svo ég fór bara útí bíl til að færa hann, en þá hafði hélv"#%/%# sett tvo feita límiða framan á rúðuna á bílnum, einmitt beint fyrir framan stýrið! Þá fór nú að styttast í kveikiþráðinum, því hún vissi alveg að ég var að setja dótið mitt í bílinn og hefði alveg getað beðið eftir mér með því að segja mér að ég mætti ekki leggja þarna, en nei! Hún ákvað að skella þessum miðum á sem er by the way ekki þægilegt að rífa af aftur!! Úff hvað ég varð pirruð, bæði sveitt og heit eftir að stigahlaupin og svo bættist þetta ofan á...! Það er ansi langt síðan að ég varð svona pirruð! En ég er  næstum búin að jafna mig á þessu núna....! 

Jæja, svo fór ég til tannlæknis á húsavík, og hann ákvað að rífa úr mér síðustu barnatönnina, því fullorðinstönnin er bara aumingji og gat ekki ýtt barnatönninni út, því það var komið tannhold á milli. Tannsi deyfði mig, braut og reif tönnina úr, og tróð einhverju efni uppí gatið sem líkist gömlu tyggói, og þegar ég var komin útí bíl eftir það fann ég ekki kortin mín, en ég fann þau þó á endanum. Jæja, ég brunaði heim, og þegar þangað var komið þá fór ég að finna til í munninum, þannig að ég ákvað bara að leggjast fyrir og fá mér verkjatöflur! Eftir að ég vaknaðu aftur þá varð dagurinn mun skárri! Væl væl væl!!

En núna ætla ég að segja frá svolitlu skemmtilegu, í síðustu viku þá var ég að dimmetera, og það var bara helvíti skemmtilegt! Hérna eru nokkrar myndir!


 María, Tinna og ég


Nanna, Hugrún, Kristín, ég og María


 Me


Svo er ég búin að fá einkunn úr íslensku og var það 9 ;) Og ég var í sálfræðiprófi á föstudaginn síðasta og mér gekk bara mjög vel, liggur við að ég hafi skrifað einum of mikið. En við sjáum til, ég hlakka bara til að fá úr þeim, svo er síðasta og eina prófið sem ég á eftir 15. maí og er það stærðfræði, en ég held að ég sé alveg í góðum málum fyrir það, þarf bara aðeins að lýta í bók.

Hér á Ærlæk er sauðburður byrjaður, komu 2 lömb i gær! 




» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 17:56:06 / harpazz

Blómavor!!

Jájá! Nú eru einungis 2 og hálf vika eftir af skólanum og allt að verða Crazzzyy!! Vorið alveg að koma, allavega er nóg til af sólinni þessa daga sem er alveg geggjað! Loksins að koma sól til að ylja manni!
    Ég fer í 2 lokapróf og sálfræðin er 2. maí en þá ætla ég að flytja af vistinni og koma ALDREI AFTUR ÞANGAÐ!! ;) HA HA!! En svo er stærðfræðiprófið 15. maí, en þá ætla ég bara að kíkja rétt í bæinn til að taka það og svo fæ ég lengri próftíma því ég er svo lengi að lesa... Dummý ég!  En annars er bara fínt að frétta, Sylvía systir góð verður fermd 26. Apríl, og ég mun byrja að vinna hjá Orkuveitu Reykjavíkur 2. Júní í svona garðyrkjustörfum og fæ alltaf langar helgar, sem þýðir reyndar minni peningur en ég ætla þá að fara í margar útileigur og skreppa heim. Þannig að ég verð hjá kallinum í Grímshaganum sem verður bara ágætt, svo er ég búin að ráða mig í sláturtíð í haust á skerinu svo ég verð heima þá :) Svo er það bara ævintýri með stúlkunum mínum :* Tíhí!
Ævintýri er að gerast, sjallalaaaa Ævintýri er að gerast... Æska og yndi... lallala... !




» 8 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 21:36:49 / harpazz

...

Krakkar mínir, ekki vera fara undir bílana ykkar í þessum mánuði! :!:

» 6 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 20:32:33 / harpazz

Páskablogg

OOhh...! Ég var svoleiðis að hugsa gott blogg uppí rúmí í gær áður en ég sofnaði og núna man ég ekki alveg um hvað það var!! Mig vantar innbyggða minnisbók í hausinn á mér sem ég get skoðað! Það vantar bara svo margt í hausinn annað en það.  *hugshugs*



Gleðilega Páska alle sammen svo! Ég eyddi föstudeginum langa í Miðfelli, og það var mjög rólegt og gott, góður matur og svonna. Svo kíktum við á hestamannafólk, því þar í sveit fer fólk í reiðtúra um sveitina á föstudeginum langa og í endann hittast menn og drekka kaffi með eða án wiskey og fá eitthvað gott í gogginn og syngja svo einhverja sálma! Svakastuð á því fólki og voru einstaka velfullorðnir menn orðnir vel hífaðir og fannst það mikið lifandi ósköp gaman og knúsuðu alla hægri vinstri, en ég passaði mig samt vel á því að vera ekkert of nálægt þeim mönnum. Svo flaug ég norður í gær og brunaði heim í sveit :) Og bara að hanga með fjölskyldunni, vorum hjá Ömmu á Ærlæk í kaffiboði, og ömmurnar voru allt í einu komnar í föt af hverri annari og voru komnar í hálfgerða tískusýningu í stofunni sem var bara gaman :)

ég er búin að sækja um vinnu hjá Orkuveitu Reykjavíkur og hjá Kirkjugörðum Rvk próffastdæma! Og nú bíð ég spennt eftir svörum! Guð hvað ég vona að ég fái hjá öðru hvoru, ég nenni ekki að finna fleiri og vesenast meira! En þrátt fyrir það þá langar mig lika bara að vera heima... ég hef sterka trú á því að ég eigi eftir að klofna í tvennt í  sumar! 8|


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 14:39:48 / harpazz

blahh...


Jájájájá...!! það er komið páskafrí ójájá! það þýðir að það eru bara um það bil 5 skólavikur eftir, og þá tekur við dimmerterin og próf! Vá hvað ég hlakka óendanlega til að dimmertera, við félagsfræðibrautin ætlum að vera með Mariobrosbrotherþema, getum s.s. verið bæði Mario og græni bróðir hans, já eða prinsessan ;) Svo er ég bara komin í borg dauðans, fékk far með Tinnsu minni, við skelltum okkur svo í bæinn á föstudagskvöldið og kíktum á lífið! Mjög gaman og við vorum bara óvenjustilltar og komnar snemma heim :) Svo eftir það var ég bara "minn eigin herra" hérna í bænum því kallinn asnaðist til Englands á tónleika en er á leiðinni í flugi einmitt núna, meira segja rétt lentur kannski, svo ég er bara með íbúð og bíl alveg alein! :) hehe... já... svo ég ætla að gera einhverjar tilraunir á bílnum þegar það er lítil umferð! Múhaha! Ég, Lotta og Lára ætlum svo að skella okkur til Taílands í haust! ;) Ég hlakka mjög til, get ekki beðið eftir því að komast þangað ;)




» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 15:33:39 / harpazz

Last Night A DJ Saved My Life!


Ég er bara næstum því einstaklega dugleg í ræktinni :) ég reyni að mæta í hvern tíma sem er á átaksnámskeiðinu ( sem er þrisvar í viku) og reyni svo að púla eitthvað sjálf 2-3 daga en ég hef sleppt því að fara stundum á föstudögum þegar ég hef farið heim, og svo á mánudeginum eftir að Dave Spoon kom, en þá var ég mjög aum á iljunum, enda dansaði ég eins og "motherfucker" í Sjallanum. Mjög gaman, enda var maður vel í því eftir afmælið hjá Tinnu, sem var líka alveg geggjað! ;) hehe... Maður ætti endilega að fara oftar út með þessu liði! ;)

Er það í alvörunni rétt að maður verður bara svangari eftir að hafa borðað epli??

Svo er þorrablótið á morgun, ég er byrjuð að hlakka mjög til!! :) ég hlakka svoo til að fá mér harðfisk og hákarl.. mmmhhh nammi namm! :Þ
Skólinn er bara komin á gott skrið, verkefni, ritgerðir og fyrirlestar að lýta dagsins ljós. Fundir hjá útskriftarnemum stökusinnum :)

Svo kom Maggi til mín síðasta mánudag, sumir eru nefnilega að vinna svo mikið að þeir eiga bara einn og einn virkan dag í frí á mánuðu... og stundum eina helgi. Þannig að hann ákvað að skella sér til Hörpunnar sinnar, og það var æðislegt! :) þótt það hafi ekki nema verið bara einn dagur þá var svolítið orkuboost fyrir næstu 1-3- vikur. Annars ætla ég að reyna að sníkja mér far samt suður næstu helgi því þá er löng helgi í skólanum og örugglega einhverjir að fara suður á fimmtudeginum. blah blah blah ég veit ekki af hverju ég er með þessa síðu, ég tala ekki um annað en skólann og eitthvað svona leiðinlegt! pff... og mig langar að fara á háskólakynninguna sem er í rvk á morgun!

Planið fyrir þetta ár og eitthvað fram á næsta :

Klára VMA, útskrifast, fara suður og vinna við eitthvað skemmtilegt og vonandi eignast einhvern pening. Vinna á sláturtíðinni í haust í Fjallalambi. Ferðast eitthvað með Lottu og Láru til jóla eða eitthvað... Svooooo fara í málaskóla árið 2009, áður en ég fer í háskóla um haustið.
En auðvitað getur þetta breyst, eins og allt annað! :)




 

» 12 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 20:21:56 / harpazz

hmmm...

 

Tölvan mín er loksins komin úr viðgerð.. alveg ryklaus að innan vonandi :) En það er nú reyndar eitthvað annað með mig.. ég er búin að vera að fara í nokkrar blóðprufur fyrir og eftir jól, er semsagt að fara 5. blóðprufuna á mánudaginn. Þannig byrjaði það nú að í lok nóvembers þá fékk ég örlítinn hita og var smá slöpp í nokkra daga, og fékk semsagt einhvern verk neðan við brjóstkassann sem vildi svo ekki hverfa um leið og ég losnaði við slappleikann. Þannig að ég fór til læknis og fór svo í fyrstu blóðprufuna þá, og þá hélt læknirinn að ég væri með nýrnasteina eða eitthvað svoleiðis (Svo hvarf verkurinn) .. og ég fór svo aftur og aftur í blóðprufu og það komu mismunandi niðurstöður úr þessu öllu t.d. bólga á lifrinni. Þannig vonandi fer ég í síðustu blóðprufuna á mánudag og fæ að tala við lækni sem veit eitthvað í þessum málum. En annars þá er ég bara hress og finn ekki fyrir þessum verk lengur.

Skólinn er kominn nokkurn veginn á skrið, ákvað að byrja í ræktinni, skráði mig s.s. á 6. vikna námskeið fyrir konur í Átaki og það er bara gaman. Það virkar allavega betur fyrir mig að byrja á svona námskeiði svo ég læri eitthvað og komi mér í ræktina, ég tímdi samt ekki alveg að fá mér einkaþjálfara.

Lag í spilun: The Cranberries - I can´t be with you 

 

Hér erum við skötuhjú í byrjun janúar.

  


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 15:54:22 / harpazz

jahá

Jæja, jólin eiginlega löngu búin, ég fékk ýmislegt nytsamlegt i jólagjöf þetta árið. Meðal annars var það ilmvötn, náttföt, nærföt, ljósmyndir í römmum ( Mig var farið að vanta þannig myndir J ), boli, eyrnalokka og hálsmen, pönnukökupönnu, spaða og disk frá ömmu sem hún hefur málað sjálf á undir pönnukökurnar ;) ég var voða ánægð með það. Svo fékk ég sálfræðibók sem fjallaði um ástina og ég hef verið að krúska í henni.

Ég eyddi áramótunum hjá Magga mínum og tengdó á Flúðum og það var bara ósköp kósý og gaman, átum nautakjöt og horfðum auðvitað á skaupið. Mér fannst skaupið bara ágætt. Svo fékk ég að hjálpa til við mjaltirnar, það var bara skemmtilegt að sjá hvernig það færi fram að mjólka um 30 beljur J

Svo er skólinn byrjaður og ég verð í 15 einingum í dagskóla og tak 3 í fjarnámi. Og ef ég næ þessu öllu þá er ég útskrifuð af Félagsfræðibraut með 141 einingar. Mér finnst það ágæt tilhugsun því á vissan hátt því er ég komin svolítið leið á VMA og að vera í skóla, en það er samt scary hugsun að fara þá að vinna í heilt ár, og guð má vita við hvað! En ég er allavega ekki að fara í háskóla strax því ég finn að ég er ekki tilbúin í það. Annars langar mig svo að ferðast og vonandi fara í Málaskóla og læra enskuna betur áður en það gerist.

En þá ætla ég að fara með tölvuabaratið til læknis... !  


» 13 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 17:50:53 / harpazz

jólin jólin

úff...jæja, loksins eru jólin bara á næsta leyti!

Ég fékk að sleppa því að taka lokapróf í þessum tveim áföngum sem voru með lokaprófi, svo ég var komin í jólafrí frá skólanum 30. nóv (eða svona nokkurn veginn, var að skila ritgerð 7. des en þá var ég alveg búin) En ég er hins vegar búin að vera að vinna í fjallalambi á kópaskeri í 3 vikur, og að skúra þar svo ég er nú ekki búin að liggja í leti allt jólafríið. Ég vona bara að ég verði ánægð með launaseðilinn þegar hann kemur :D

Ég er lika bara mjög ánægð með einkunnirnar mínar, er með þrjár níur og þrjár áttur og bara eina 7, og enga fimmu núna eins og flestar annirnar. :D :D

Ég fer svo kannski til Magga míns um áramótin, er bara ekki alveg búin að ákveða þar sem ég er löngu búin að panta flug 2 janúar. Hugsa að ég verði þar minnsta kosti þangað til að skólinn byrjar 7-8 Janúar.

Well, ég ætla nú bara að segja Gleðileg Jól og farsælt komandi ár og takk fyrir það liðna, Látið ykkur líða vel um jólin og látið ekki hversdagsleikann stela jólunum!


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 20:04:29 / harpazz

Chicken? ;)

Þetta eru nokkrir bitar skrifaðir á sitthvorum deginum í vikunni. Ákvað að skrifa það niður strax þegar ég fékk hugmynd um hvað ég ætti að blogga um:

Einhverra hluta vegna langaði mig að segja ykkur fá því þegar ég var í Sjallanum í vor, ég man nú ekki alveg tilefnið en það var allavega eitthvert fjör :) og eins og oftar áður þá man ég nú ekki alveg allt, en þetta var rétt áður en Sjallinn lokaði á laugardagsnóttu, ég fór semsagt á barinn með vinkonu minni og lenti þar á tali við strák sem ég var með í ensku, ég hafði ekkert talað við hann áður, og hann sat alltaf fyrir aftan mig í tíma. en það er oft þegar maður er komin í glas getur maður talað við hvern sem er nánast um hvað sem er.... En allt gott að blessað, mig minnir að hann hafi gefið mér bjór og hann fékk sér einn bjór líka. Svo þegar við vorum búin að tala dágóða stund saman þá var maður svona ja, reyna að fara eitthvert annað svo maðurinn héldu nú ekki að eitthvað væri að fara að gerast... Þannig að við göngum að dansgólfinu og ég er um það bil að fara að segja eitthvað að ég ætlaði að finna vinkonu mína, þá sný ég mér að honum og hann missir bjórglasið sitt í gólfið fyrir framan mig og allur bjórinn yfir mig, svo í snarheitunum kemur einhver félagi hans og dregur hann í burtu.... og eftir stend ég rennblaut af bjór!! Hann var allavega horfinn og svo þegar kom að næsta enskutíma var eins og ekkert hafði gerst... hehe, stundum getur lífið verið svo skrýtið!

ég er afskaplega "skrifglöð" núna, en kannski langar ykkur að vita að ég stundum gerist það með mig að vinstri munnvatnskirtillinn minn á það til að stíflast við vissa ertingu, t.d. þegar ég borða eitthvað súrt, eða bursta tennurnar. En þá bólgnar hann upp, semsagt undir tunginni, og ég fæ lítið kýli útur hálsinum ( það er nú ekki stórt) :)

Svo á ég til að tárast mikið þegar ég er þreytt, gerist oft á morgnana þegar ég er þreytt í skólanum, og ég hef fengið komment hjá fólki " Kva, ertu að grenja?" eða " ertu lasin, mér sýnist þú vera svo vot til augnanna" eða " vó, af hverju ertu að gráta?" En þá í rauninni er ég nýlega búin að geyspa og þá á ég til að gráta! ;) Og það bara lekur og lekur úr þeim!

Smá úr lífi hörpunnar* 


» 15 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 21:15:27 / harpazz

.........


Það er svo sem ekki mikið að frétta af mér, ég er bara að skólast, og skrepp oftast heim um helgar, fyrir utan þessa helgi því ég ákvað að skella mér á Pál Óskar, og það var bara gaman.

Annars er ég komin á annan bíl en það er Suparu Legacy, ´98, sjálfskiptur og fjórhóladrifinn svo ég kemst á auðveldlega á milli staða í hálku. En Skódi gamli „dó“. Headpakkningin í honum varð ónýt, svo hann verður vísast ekki notaður meir. :$

 

Núna eru 3 vikur eftir af skólanum, og síðustu vikuna verður alveg brjálað að gera, ég fer allavega í 3 próf í þeirri viku, stórt sögupróf og próf  uppeldisfræði og bókfærslu, ég svitna bara við tilhugsunina, en hins vegar fá ég hjartastopp við tilhugsunina um fyrirlestur sem ég fer með í þessari viku, ásamt Jóhönnu Íris um Geðhvörf, en sá fyrirlestur gildir fucking 40%!! Bara rugl!! En hinsvegar þótt að það verði mikið að gera hjá mér næstu vikurnar þá þarf ég ekki að taka nema 2 lokapróf, en það er svo alls ekkert víst að ég þurfi að taka þau því ef maður er með meðaleinkunnina 8 og er með meira en 90% mætingu þá getur maður sleppt við lokaprófið, og ég enn með það þannig og vonandi helst það þannig. Ef það helst þá kemst ég í jólafrí 30. Nóv. En ég er að vonast eftir því að fá að vinna í fjallalambi svo ég hafi nú eitthvað að gera í fríinu ;)

Hér er mynd svo að nýja djásninu :þ 

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9